hæ. ég er búin að sakna orðum vikunnar en öll gleði þarf jólafrí. hér eru þau komin aftur.
það sem er nýtt núna er að ég deili daglega orðum dagsins í story á instagram, svo hér mun ég koma þeim öllum saman. ég er að vinna að því að hafa póstlista sem verður með meira djúsí orðum vikunnar, er mjög spennt að segja ykkur betur frá því. gott að vera hér, takk fyrir að vera hér líka.
langar að vita
hvaða lífi þú ert að
lifa núna en samt ekki
þú getur ekki stolið einhverju
af mér sem ég á ekki til
eini staðurinn sem við
gætum rekist á hvort annað
heitir martröð
ég ferðast til baka um
16 ár þegar ég sé þig
ég vona að
harða skinnið
undir fótunum mínum
rispi þig ekki óvart
þú ert ekkert
nema klikkbeita
þegar þú ert að hraðspóla
á sama stað því þú vilt fara svo
langt en tekur ekki litlu skrefin
hlakka til að deila með þér fleiri orðum í næstu viku.