hægt er að velja um að koma í stúdíó á Egilsstöðum eða mynda í náttúrunni. fyrir myndatöku í athöfn og/eða veislu er grunnverð 20.000kr. fyrir fyrsta klukkutímann og 15.000kr. eftir það.
til að bóka athöfn eða veislu máttu fylla út bókunarform fyrir þá töku sem þú vilt og skrifa í athugasemdir hvað þú vilt aukalega.
innifalið:
- 5 fullunnar rafrænar myndir í lit og svarthvítu
- ein staðsetning utandyra eða í stúdíói
- allt að 30 mín myndataka
verð: 30.000 kr.
innifalið:
- 10 fullunnar rafrænar myndir í lit og svarthvítu
- ein staðsetning utandyra eða í stúdíói (egilsstaðir)
- allt að 60 mín myndataka
verð: 40.000 kr.
innifalið:
- 15 fullunnar rafrænar myndir í lit og svarthvítu
- tvær staðsetningar t.d. úti og inni
- allt að 90 mín myndataka
verð: 50.000 kr.
fermingarbörn geta komið fyrir fermingardaginn, á honum eða eftir hann.
myndataka er ekki bókuð fyrr en 5.000kr. staðfestingargjald hefur verið greitt. gjaldið er óafturkræft og fer upp í kostnað myndatökunnar. restina af verðinu skal borgað strax að myndatöku lokinni.
ég er staðsett á egilsstöðum og er þar með stúdíó, fyrir myndatöku utandyra þá get ég eða þið valið stað. staðsetning utan egilsstaða kostar aukalega.
ef það eru fleiri góðar myndir úr tökunni en þær sem þú bókaðir að þá sendi ég skjáskot af þeim sem koma til greina og þú getur valið úr og ég unnið þær á 2.500kr. stk.
myndunum er skilað sem wetransfer link, og koma þær í 2 möppum, í vef- og prentupplausn.
myndir í vefupplausn eru ekki með "logoi" en mér þykir vænt um að vera tögguð ef þið deilið á samfélagsmiðlun - @taratjorva á Instagram og tara tjörva á Facebook.
eftir tökuna getur tekið 1-2 vikur að vinna og skila myndunum.
ég áskil mér rétt á að birta myndir í auglýsingaskyni, ef þú vilt það ekki máttu láta mig vita.
ef þú ert með hugmyndir af myndum sem þú vilt máttu endilega senda mér þær. fyrir nánari upplýsingar eða tilboð geturu sent mér skilaboð á tara@taratjorva.com